Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Á Dagskrá

Spjallkubbur

..Augnablik

Félagar á veraldarvefnum

Innskráningar kubbur

Ábening um nýja síđu!!!

18. ágúst 2008 klukkan 22:55

Bara til að vera viss þá vil ég benda á það að við tókum í notkun nýja síðu í byrjun þessa árs hún er:  http://www.123.is/sindri/ 

Sjáumst þar!!!:-)

Vilborg Smáradóttir
Engin athugasemd

KVENNAREIĐ "međ karlana"

02. apríl 2008 klukkan 12:41

Halló halló

Nú fer að styttast í hina stórskemmtilegu og ómissandi KVENNAREIÐ "með karlana"Svalur

Eins og áður hefur komið fram, verður hún farin  19. apríl nk.

Skráningu skal lokið 14. apríl og fer skráning fram hjá:
Hjördísi Rut í síma 4871494  / 8610294
Siggu Lóu í síma 4878959  /  8983541

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

fyrir hönd HMF Sindra,
ferða og fræðlsunefnd

Lára Oddsteinsdóttir
Engin athugasemd

Ný síđa til reynslu

19. mars 2008 klukkan 11:17
Kíkið inn á http://www.123.is/sindri/  og takið þátt í könnunninni til að láta vita hvað ykkur finnst.
Petra K Kristinsdóttir
Engin athugasemd

Ćskan og hesturinn

18. mars 2008 klukkan 17:45
Jæja krakkar þá er komið að því að við í reiðskóla og æskulýðsnefndinni komumst á skrið. Við ætlum í vettvangsferð laugardaginn 29. mars og hún er c.a. svo hljóðandi:

08:30 lagt af stað frá Vík og krakkar úr sveitinni "pikkaðir" upp einn af öðrum.
10:30 "hádegismatur" á Selfossi
11:00 haldið áfram frá Selfossi
12:00 Komið til Reykjavíkur, fyrsti stoppistaður Hestasundlaugin Faxahestar þar fáum við að skoða okkur um og sjá hest á sundi.
13:00 Farið upp í reiðhöll á sýninguna æskan og hesturinn, Krakkarnir fá með sér nesti frá okkur brauð og safa fyrir kaffitíma.
16:00 Lagt af stað úr bænum.
18:00 Kvöldmatur á Hvolsvelli
19:00 Keyrt heim á leið.

Vonandi líst ykkur á þetta hjá okkur og komið sem flest, verð á mann er kr. 2.500.- og er þá allur matur innifalinn og rútufarið auðvitað líka, hestamannafélagið ætlar að vera svo rausnarlegt að styrkja okkur um dágóðan slatta fyrir rútufarinu sem er frekar dýrt. En aldrei er að vita nema við náum að stilla verðið eitthvað niður ef margir mæta.

 

Þeir sem hafa áhuga á að koma með okkur eru beðinir að skrá sig hér undir í athugasemdir fyrir 26. mars.

 

Með kveðju æskulýðsnefnd

Vilborg Smáradóttir
8 athugasemdir

VETRARMÓTI LOKIĐ..

17. mars 2008 klukkan 07:44
Og gekk svona líka glimrandi vel.
Ég ætla að reyna að setja inn úrslitin hér fyrir neðan eftir minni. Vonandi leiðréttið þið mig ef ég geri eitthvað vitlaust. Þetta verður svo eflaust sett inn undir úrslit.
En hér kemur þetta.
Pollaflokkur.
Sigurður Ásgrímur Gíslason og Rjúpa frá ??
Barnaflokkur:
Heiðar Þór Sigurjónsson á Rauð blesóttum hesti sem ég man ekki nafnið á.
Þorteinn Björn Einarsson  á Stormi frá Ytri Sólheimum
Elín Árnadóttir á Kötlu frá ??
Unglingaflokkur:
Jóna Þórey Árnadóttir á Von frá Núpakoti
Ásta Alda Árnadóttir á Tinnu frá Núpakoti.
Harpa Ósk á Glæst frá Efstu Grund
Kvennaflokkur:
Jóna Þórey og Von frá Núpakoti
Vilborg Smáradóttir og Perla frá Eyjarhólum
Ásta Alda og Tinna frá Núpakoti
Karlaflokkur:
Magnús Benediktsson og Kristall frá Fornusöndum
Árni Gunnarsson og Gima frá Laugardælum
Hlynur Guðmundsson og Lukka frá Önundarhorni.

Þetta eru svona nokkuð ábyrg úrslit. En ég vona að mér sé fyrirgefið þó ekki sé ættin á þessum hrossum og það vantar líka hvaðan þau eru sum. Kanski Dóra geti bætt úr því þar sem hún er með bókina með skráningunum.
En eins og þið sjáið þá er aðeins einn í pollaflokk og það hefur sér ýmsar skýringar. S.s veikindi og annað.
En það verður örugglega ekki síðra á næsta vetrarmóti sem ég því miður missi af. En það er ekki hægt að vera alls staðar.
Petra K Kristinsdóttir
Engin athugasemd

VETRARMÓT OG FLEIRA

14. mars 2008 klukkan 11:51
FYRSTA vetrarmót Sindra verður haldið á reiðvellinum í Vík kl 14  Á MORGUN.
Hlakka til að sjá ykkur og við bjóðum Kópsmenn sérstaklega velkomna til keppni.

Að allt öðru.
Fréttabréfið okkar fer í póst í dag til allra félaga.
Ef hins vegar þú ert félagið og færð ekki fréttabréf eftir helgi. Þá endilega láttu mig vita í netfangið mitt eða hér inni. Því alltaf geta mannleg mistök átt sér stað og einhvert nafn fallið út.

En sjáumst hress og kát stundvíslega kl 14 á morgun.

P.s Skráning hefst kl 13:15
Petra K Kristinsdóttir
Engin athugasemd

USVS ŢING

10. mars 2008 klukkan 11:47
 Sindrafélagar athugið..
Nú er að nálgast USVS þing og við eigum að senda 5 fulltrúa á þing. Mig bráðvantar 4 aðilla sem geta séð af tíma til að fara. Þingið er haldð laugardaginn 29. mars kl 10 á Kirkjubæjarklaustri.
Það er mikilvægt að við sendum fulltrúa því annars fáum við ekki lottótekjur... Og það kom einmitt fyrirspurn um hvort við hefðum fengið þær á síðasta ári og það er. Man ekki alveg töluna en hún er þónokkur og skiptir lítið og fátækt félag máli.
Endilega reynið að sjá af tíma þennan dag og heyrið í mér í síma 487-1322/866-0786 eða á maili      solheimar2@simnet.is 

formaður
Petra K Kristinsdóttir
Engin athugasemd

FYRIRLESTUR UM HESTA-HNYKKINGAR

06. mars 2008 klukkan 17:20

Góðan dag kæru félagar

Fyrirlestur og sýnikennsla verður haldin í knapamerkjanámskeiðinu 19. mars nk. klukkann 17:00 í Skálakoti.
Fyrirlesari verður Dr. Susanne Braun, fagdýralæknir í hestasjúkdómum og hnykkingum.
Fjallað verður um vöðvauppbyggingu, beinabyggingu, heilbrigði og almennri vellíðan hestsins.

Fyrirlesturinn er öllum opin.

Þáttökugjald er krónur 500 á mann

Hlökkum til að sjá sem flesta

fyrir hönd ferða og fræðslunefndar
Lára






Lára Oddsteinsdóttir
3 athugasemdir

FRÉTTABRÉF SINDRA

04. mars 2008 klukkan 11:34
Halló gott fólk..
Ég er að fara að vinna í fréttabréfi..
Dagsetningar viðburða hjá félaginu eru vel þegnar.
Formenn nefnda endilega sendi mér e-mail á solheimar2@simnet.is
form Ferða og fræðslun. Lára Oddsteinsd.
form. Reiðskóla og æskulýðsn. Vilborg Smárad.
form. Mótanefndar. Undirrituð og Guðný Sigurðard.
form. Skemmtin. Birna K. Pétursd.
form. Reiðvega og áningagerðisn. Árni Gunnarsson.
Eins megið þið sem hafið flutt á árinu endilega senda mér ný heimilisföng á sama e-mail.
þar til næst.
Petra K Kristinsdóttir
Engin athugasemd

AĐALFUNDUR!!!!

27. febrúar 2008 klukkan 13:01
Sindrafélagar

Munið aðalfundinn næskomandi föstudag (29/2) í Skálakoti kl 20:00
mætum nú sem flest og eigum góðann fund..
Hægt verður að kaupa sér kaffi og með því á fundinum.
Stjórnin.
Petra K Kristinsdóttir
Engin athugasemd